Bjarnaborg á Hverfisgötu 83, fyrsta fjölbýlishús landsins sem byggt var árið 1902, er komið í húsfélagsþjónustu hjá Eignaumsjón. Fyrirtækið H83 ehf. keypti húsið af Félagsbústöðum í desember 2024 og tók allt húsið í gegn, bæði innanhúss og utan. 15 íbúðir eru í húsinu og er þriðjungur þeirra þegar seldur og tók húsfélagið Hverfisgata 83 formlega til starfa í byrjun desembermánaðar 2025.
Bjarnaborgin var reist á árunum 1901 og 1902 af Bjarna Jónssyni snikkara , húsasmiði og timburkaupmanni sem er talinn hafa reist að minnsta kosti 140 hús í Reykjavík. Hann var einnig fátækrafulltrúi og á Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu, kemur fram að hann hafi viljað reisa húsið sem minnisvarða um sig sjálfan.
Fyrsta fjölbýlishúsið
Bjarnaborg var í útjaðri Reykjavíkur og var fyrsta fjölbýlishús landsins þegar þéttbýli var að myndast í borginni. Þar bjuggu til að mynda 168 manns árið 1917.
Árið 1916 keypti Reykjavíkurborg húsið og fékk fátækranefnd borgarinnar það til umráða og leigði nefndin efnalitlu fólki herbergi eða íbúðir í húsinu fram undir 1930, fólki sem var í húsnæðishraki og fengu margir íbúanna húsaleigustyrk, en á fjórða áratug síðustu aldar fór að draga úr þörfinni fyrir þannig úrræði. Áfram var húsið þó nýtt í félagslegum tilgangi en smám saman breyttist íbúahópurinn og meira fór að bera á óreglufólki í hópi íbúa.
Iðnnemaíbúðir og félagsbústaðir
Árið 1987 keypti byggingarfélagið Dögun húsið af Reykjavíkurborg og var það notað undir íbúðir fyrir iðnnema á árunum 1994-2003. Þá keyptu Félagsbústaðir hf., hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, húsið sem enn á ný var nýtt sem félagslegt leiguhúsnæði á vegum borgarinnar.
Allt tekið í gegn 2024-2025
Í desember árið 2024 seldu Félagsbústaðir Bjarnaborgina. Kaupandi var fyrirtækið H83 ehf., sem síðastliðið ár vann ötullega að endurnýjun hússins.
„Hér hefur allt verið tekið í gegn, bæði innanhúss og utan, til að mæta kröfum um nútíma þægindi en eftir sem áður lifir samt sjarmi þessa fyrsta fjölbýlishúss landsins, Bjarnaborgarinnar,“ segir Snorri Sigurðarson, formaður húsfélagsins Hverfisgötu 83 og einn af forkólfum samnefnds félags sem sá um allar framkvæmdir.
Gullfallegar íbúðir í miðborg Reykjavíkur
„Útkoman eru 15 gullfallegar endurnýjaðar íbúðir í sögufrægu húsi í miðborg Reykjavíkur, sem henta jafnt fyrstu kaupendum sem og þeim sem vilja búa í námunda við mannlíf og þjónustu,“ segir Snorri og bætir við að þriðjungur þeirra sé þegar seldur. Nánari upplýsingar um íbúðirnar er að finna á fésbókinni Bjarnaborg.
Hverfisgata 83 – húsfélag, samanstendur af 15 eignarhlutum og er í húsfélagsþjónustu hjá Eignaumsjón í þjónustuleið Þ-2; fjármál og fundir.