Hjá Eignaumsjón á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík eru til leigu fimm funda- og ráðstefnusalir, sem henta jöfnum höndum fyrir fundi og ráðstefnur, fyrirlestra og námskeið, kennslu og fleira. Stærsti salurinn tekur allt að 120 gesti í sæti, sá næst stærsti er fyrir allt að 50 gesti, tveir salir taka hvor um sig 25 gesti í sæti og í fimmta salnum geta 12-14 gestir setið við fundarborð.
Fundarsalirnir eru á 2. hæð í bakhúsinu á Suðurlandsbraut 30. Inngangur í salina er á suðurhlið bakhússins frá efra bílastæðinu, þar sem eru jafnan næg stæði fyrir gesti. Gott aðgengi og þægileg aðkoma er fyrir gangandi, hjólandi og akandi fundargesti að Suðurlandsbraut 30. Strætóstoppistöðvar eru einnig framan við húsið, beggja vegna Suðurlandsbrautarinnar.
Til leigu alla daga vikunnar
Salirnir eru leigðir út alla daga vikunnar, bæði að degi til og kvöldi. Leigutími er að jafnaði 2 klst. Fast tímagjald er innheimt fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram leigutíma.
- Innifalið í leigu er; fundarsalur, stólar, borð fyrir fundarstjóra og fráleggsborð, afnot af upplýsingaskjá og borðtölvu.
- Þráðlaust net, upplýsingaskjáir og tölvu- og fjarfundarbúnaður er í öllum sölunum. Í stóru sölunum eru 98 tommu upplýsingaskjáir (led) sem geta tengst fartölvu og Yealink fundarsalalausn. Ef óskað er eftir að nota fjarfundarbúnað þarf að taka það fram þegar gengið er frá salarleigu og fær leigutaki þá leiðbeiningar um virkjun búnaðar. Greitt er sérstaklega fyrir afnot af fjarfundarbúnaði.
- Gott aðgengi er að salernisaðstöðu á hæðinni og hjólastólaaðgengi.
- Hægt er að fá kaffiuppáhelling milli kl. 8-17 á virkum dögum. Sjálfsali með drykkjum og fleiru er til staðar.
- Við skil er miðað við að frágangur í fundarsölum sé með sama hætti og tekið var við þeim og umgengi þrifaleg.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Eignaumsjón á skrifstofutíma, í síma 585-4800 eða í netspjalli. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is.
Sjá frekari upplýsingar og myndir á salir.is