Þegar kólnar í veðri er oft eins og „haustveiki“ herji á hitakerfi fjölbýlishúsa. Þá þarf að grípa til aðgerða, bæði til að meta ástandið og tryggja að hitakerfið virki eðlilega.
Til að bregðast við vandamálum af þessu tagi býður Eignaumsjón húsfélögum, hvort sem þau eru í rekstrarumsjón hjá félaginu eða ekki, upp á áskriftarþjónustu sem kallast Hitavaktin.
Skilvirk orkunotkun og lægri orkukostnaður
Hitavaktin felur í sér reglubundna skoðun og eftirlit í tæknirýmum í sameignum húsfélaga til að tryggja að bæði hitagrindur og snjóbræðslukerfi starfi á fullum afköstum og án vandamála.
„Reglubundið eftirlit fagfólks getur bæði dregið úr sóun og sparað heitt vatn, sem hefur hækkað umtalsvert á liðnum árum, og þannig lækkað bæði rekstrarkostnað húsfélaga og útgjöld eigenda,“ segir Guðmundur Orri Arnarson, umsjónarmaður fasteigna hjá Eignaumsjón. “Það er því til mikils að vinna fyrir eigendur í fjöleignarhúsum að vel sé fylgst með ástandi hitagrinda og snjóbræðslukerfa.“
Stjórnir húsfélaga sem eru áhugasamar um Hitavaktina geta haft samband við þjónustuver Eignaumsjónar í netspjalli, sent póst á thjonusta@eignaumsjon.is eða hringt í síma 585-4800.