Leit er hafin að nýjum framkvæmdastjóra Eignaumsjónar hf. þar sem Daníel Árnason hefur ákveðið að láta af störfum á árinu. Starfið hefur þegar verið auglýst.

Framkvæmdastjórinn, sem gegnt hefur stöðunni í tæpa tvo áratugi, segir ýmsar ástæður liggja að baki þessari ákvörðun sinni.

„Ég verð 67 ára á þessu ári og tel tíma kominn til að sinna mér sjálfum og mínum nánustu í auknum mæli. Þegar ég var ráðinn til félagsins árið 2007 var þjónusta af þessu tagi lítt þekkt. Viðskiptavinir voru þá á bilinu 40-50 húsfélög og starfsmennirnir fjórir talsins. Síðan er mikið vatn til sjávar runnið, hús- og rekstrarfélög um fasteignir í þjónustu hjá Eignaumsjónar eru orðin um 1.350 talsins og fastir starfsmenn 65,“ segir Daníel.

Aukin áhersla á stafrænar þjónustulausnir og nýsköpun

Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eignaumsjónar undanfarin ár, fjárhagsleg staða félagsins er traust, samtímis því sem kröfur hafa aukist um nýjar útfærslur á þjónustu og nýsköpun með enn meiri tæknivæðingu og stafrænum lausnum.

„Með hliðsjón af þessu tel ég tímabært að ég stígi til hliðar og við finnum yngri leiðtoga í brúna hjá Eignaumsjón, nýjan framkvæmdastjóra sem fái tækifæri til að leiða farsællega þessa framtíðarvegferð félagsins,“ bætir Daníel við, en tekur jafnframt fram að hann muni sitja áfram í stjórn félagsins og standa þar vörð um það góða starf sem unnið hefur verið og þarf að vinna.

Hlekkur á starfslýsingu og umsókn um starf framkvæmdastjóra Eignaumsjónar