HMS hefur samþykkt að Húsumsjón Eignaumsjónar geti séð um sjónræna skoðun á slökkvitækjum og slöngukeflum í sameignum húsfélaga. Farið er yfir ástand búnaðar, aðgengi, merkingar og almenna virkni. Markmiðið er að tryggja að búnaður sé til staðar, sýnilegur og tilbúinn til notkunar ef á reynir.
Lögum samkvæmt ber að kanna ástand slökkvitækja og slöngukefla árlega en Húsumsjón Eignaumsjónar, þar sem starfa m.a. þaulreyndir fyrrverandi slökkviliðsmenn, yfirfer þessi atriði í reglulegum eftirlitsheimsóknum í hús- og rekstrarfélög sem eru í þessari sérþjónustu hjá félaginu.
Einfaldar utanumhald brunavarna
Ef í ljós koma frávik eða gallar sér Húsumsjón um að koma viðkomandi búnaði til viðurkennds þjónustuaðila, sem annast þá viðhald, áfyllingu eða viðgerðir eftir þörfum. Með þessu fyrirkomulagi einföldum við utanumhald brunavarna fyrir stjórnir húsfélaga, tryggjum faglega eftirfylgni án aukins álags og skráum skoðanir, ábendingar og athugasemdir jafnóðum í skýrslu til stjórnar, sem birtist í Húsbók viðkomandi húsfélags. Þetta fyrirkomulag eykur einnig öryggi umfram árlegar skoðanir, þar sem heimsóknir Húsumsjónar eru mun tíðari.
Fjárhagslegur ávinningur fyrir mörg húsfélög
Þessi nýjung hefur einnig fjárhagslegan ávinning í för með sér. Þau húsfélög, sem eru nú þegar í Húsumsjón og hafa samhliða greitt sérstaklega fyrir úttektir á slökkvitækjum og brunaslöngum, geta nú sparað þann kostnað því ástandsskoðun slökkvitækja verður framvegis hluti af Húsumsjóninni.
Við hvetjum einnig stjórnir húsfélaga, sem eru ekki í Húsumsjón hjá okkur en vilja kynna sér þjónustuna frekar, til að hafa samband við okkur og fá frekari upplýsingar. Þjónustuverið er opið alla virka daga milli kl. 10 og 15, síminn er 585-4800 og einnig er hægt að senda tölvupóst á thjonusta@eignaumsjon.is eða í netspjalli á www.eignaumsjon.is.