Alþingi hefur samþykkt frumvarp um breytingu á lögum um fjöleignarhús, sem kveður á um að hunda- og kattahald verði ekki lengur háð samþykki eigenda. Alls greiddu 33 þingmenn atkvæði með breytingunni, átta greiddu atkvæði á móti og átta greiddu ekki atkvæði.
Almennt má segja að lagabreytingin feli í sér að grunnreglu fjöleignarhúsalaganna, um að hunda- og kattahald sé bannað í fjölbýlishúsum nema samþykki aukins meirihluta eigenda um annað liggi fyrir, hafi nú verið snúið við og er hunda- og kattahald nú leyft í fjölbýli nema samþykki aukins meirihluta eigenda liggi fyrir um annað.
Húsfélög geta sett sér reglur
Samkvæmt samantekt um lagabreytinguna á vef félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þarf fólk, sem býr í fjöleignarhúsum og deilir stigagangi með öðrum, ekki lengur samþykki annarra eigenda fyrir því að eiga hund eða kött.
Húsfélög munu þó geta sett reglur um hunda- og kattahaldið, svo lengi sem þær eru málefnalegar, eðlilegar og byggðar á jafnræði. Eigendur geta þá sammælst um nánara fyrirkomulag dýrahaldsins, svo sem um umgengni og afnot á einstökum hlutum sameignar. Fram kemur í samantektinni að slíkar reglur geti þó eðli máls samkvæmt ekki gengið svo langt að þær girði fyrir hunda- eða kattahald í húsinu, enda væri það andstætt markmiði laganna.
Hægt að banna dýr sem valda verulegum ama
Húsfélög geta áfram lagt bann við hundum og köttum ef dýrin valda verulegum ama, ónæði eða truflunum og eigendur bregðast ekki við áminningum húsfélagsins og ráða bót þar á. Þannig gæti húsfélag til dæmis bannað einstök tilvik dýrahalds ef ofnæmi væri á svo háu stigi að sambýli við dýrið yrði óbærilegt og ekki væri hægt að finna lausnir til að ráða bót þar á.
Samþykki 2/3 hluta eigenda þarf þó fyrir slíku banni og það sama gildir þegar eigandi dýrs brýtur verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum samkvæmt lögunum eða reglum húsfélagsins, þrátt fyrir áminningar húsfélags. Húsfélagið getur þá bannað viðkomandi dýrahald með samþykki 2/3 hluta eigenda, samkvæmt B. lið 41. gr. laganna, og gert eiganda dýrsins að fjarlægja það úr húsinu. Dæmi um slíkt brot er lausaganga hunda í sameign eða á sameiginlegri lóð, sem telst alvarlegt brot í þessum skilningi samkvæmt lögunum.