Aðalfundir 2026 fara vel af stað og frá 5. janúar hefur Eignaumsjón þegar haldið um 40 af þeim 1.220 aðalfundum sem eru á dagskrá fram að lokum maímánaðar. Meirihluti þessara funda verður haldinn í nýlegum fundarsölum félagsins á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík og því hefur verið búin til stutt vídeóklippa til að sýna aðgengi að fundaraðstöðunni og bílastæðum.
Fundarsalir Eignaumsjónar á 2. hæð í bakhúsinu á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík verða meginvettvangur aðalfundanna 2026. Þar eru fimm fundarsalir sem taka frá 12 til 100 manns í sæti. Fundir verða að jafnaði kl. 17 og 19 mánudaga til fimmtudaga og kl. 10, 12 og 14 á laugardögum. Hér er sýnt hvar er farið inn á bílastæðin á baklóðinni og gengið inn í fundaraðstöðuna á suðurhlið bakhússins frá efra bílastæðinu.
Fundarsalir Eignaumsjónar í Hafnarfirði
Nú er einnig boðið upp á að halda aðalfundi í fyrrum húsnæði Rekstrarumsjónar á 2. hæð í Bæjarhrauni 6 í Hafnarfirði, á sömu dögum og tímum og á Suðurlandsbrautinni. Þar eru tveir fundarsalir sem taka 25 og 40 manns í sæti. Hægt er að skoða staðsetningu húsnæðisins í Hafnarfirði hér.
Þá má nefna að áætlað er að halda um þriðjung aðalfunda á þessari fundatíð í sameignum húsfélaga og/eða sölum í þeirra nærumhverfi, t.d. skólum, hjá íþróttafélögum og safnaðarheimilum.
Ertu að mæta á aðalfund?
Á forsíðu heimasíðu Eignaumsjónar geta áhugasamir fundið hlekk þar sem á einum stað er hægt að skoða aðkomu að fundarsölum Eignaumsjónar, hvaða mál eru almennt til afgreiðslu á aðalfundum, sækja umboð ef viðkomandi hefur ekki tök á að mæta á aðalfund en vill senda fulltrúa fyrir sig – og fara inn á Húsbók viðkomandi húsfélags þar sem fundargögn eru aðgengileg í aðdraganda aðalfundar.