Loftslags- og orkusjóður opnaði nýlega fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús og verður alls 300 milljónum króna úthlutað til verkefna um land allt. Markmið styrkjanna er að hraða uppbyggingu hleðsluinnviða í eldri fjölbýlishúsum og tryggja að íbúar þeirra sitji ekki eftir í orkuskiptunum sem nú eiga sér stað í íslensku samfélagi.

Húsfélög fjöleignarhúsa sem skráð eru sem lögaðilar geta sótt um styrk, að því gefnu að um sé að ræða fjölbýlishús með að minnsta kosti átta íbúðum og að byggingarleyfi hafi verið gefið út fyrir 20. júní 2018. Einstaklingar geta ekki sótt um styrk og fjölbýlishús sem þegar hafa komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum falla ekki undir úrræðið.

Ætlað að mæta kostnaði við hleðsluinnviði á sameiginlegum bílastæðum

Styrkjunum er ætlað að mæta kostnaði við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa þar sem framkvæmdir geta verið umfangsmiklar og kostnaðarsamar. Styrkirnir ná meðal annars til kostnaðar vegna lagna frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum og vegna stækkunar, færslu eða nýrrar heimtaugar þar sem slíkt reynist nauðsynlegt.

Styrkur getur numið allt að helmingi af styrkhæfum kostnaði umfram grunnframlag íbúa, sem er að lágmarki 75 þúsund krónur á hverja íbúð. Lágmarks styrkupphæð er samtals 300 þúsund krónur og getur hæst numið fimm milljónum króna fyrir hvert verkefni. Styrkurinn nær ekki til kaupa á hleðslustöðvum. Nánari skilyrði um styrkúthlutanirnar er að finna í sérstakri handbók sem Loftslags- og orkusjóður gaf út.

Umsóknarfrestur til 1. október 2026

Með úthlutuninni vill sjóðurinn bæta aðgengi íbúa í fjölbýlishúsum að hleðslumöguleikum og styðja húsfélög við að uppfylla lögbundnar skyldur um hleðsluaðstöðu þegar eftirspurn skapast. Umsóknarfrestur er til 1. október 2026 og verða styrkir greiddir út þegar framkvæmdum er lokið og hleðslustöðvar komnar í notkun.